spot_img

[Stikla] JÓHANNA AF ÖRK Hlyns Pálmasonar frumsýnd í San Sebastian

Kvikmyndin Jóhanna af Örk eftir Hlyn Pálmason er frumsýnd í dag á San Sebastian hátíðinni.

Jóhanna af Örk er 62 mínútna löng mynd sem gerist í sama heimi og Ástin sem eftir er og fjallar um börnin þrjú í myndinni. Myndin fylgist með þeim smíða riddarafígúru til að nota sem skotmark fyrir bogfimiæfingar sínar. Í gegnum árstíðirnar fylgjumst við með lífi þeirra er þau bæði byggja upp og rífa niður þetta einstaka sköpunarverk sitt.

Einnig verður Ástin sem eftir er sýnd í Perlak flokki hátíðarinnar, sem samanstendur af bestu myndum ársins til þessa sem enn hafa ekki verið sýndar á Spáni. Samhliða fer fram sýning á innsetningum Hlyns: Harmljóð um hest, Eins vetra og Upphaf og endir – verk sem undirstrika feril hans sem leikstjóra og myndlistarmanns.

Jóhanna af Örk er framleidd af Antoni Mána Svanssyni fyrir Still Vivid á Íslandi, í samstarfi við Katrin Pors fyrir Snowglobe í Danmörku. Með helstu hlutverk fara þau Ída Mekkín Hlynsdóttir, Þorgils Hlynsson, og Grímur Hlynsson. Myndin er meðframleidd af Mikkel Jersin hjá Snowglobe, Danmörku og Didar Domehri hjá Maneki Films, Frakklandi. Meðal bakhjarla hennar eru Kvikmyndamiðstöð Íslands, Danski kvikmyndasjóðurinn, SASS, og CNC. New Europe Film Sales sér um alþjóðlega sölu líkt og fyrri myndir Hlyns.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR