Um helgina vann stuttmyndin O (Hringur) í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar, sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Urbino á Ítalíu.
Úrskurður dómnefndar er svohljóðandi:
“Fyrir hugrakka túlkun sína á flóknu sambandi fíknar og fjölskyldu, hráa tilfinningalega dýpt myndarinnar og getu hennar til að fanga fínleika mannlegrar baráttu, með meistaralegri leikstjórn og kraftmiklu myndmáli. Með sínum gráu litatónum fangar myndin blæbrigði mannlegs eðli og heldur áhorfandanum spenntum við að fylgast með aðalpersónunni berjast við að breyta örlögum sínum. Með kraftmiklum leik og augnarblikum sem skera hjartað, kannar myndin áleitnar tilfinningar líkt og einmannaleika sem og sársaukafullan veruleika fíkla.”
O (Hringur) var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum síðasta haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan. Þetta eru áttundu alþjóðlegu verðlaun myndarinnar, en hún var einnig valin stuttmynd ársins á Eddunni 2025.