Gamanmyndin GUÐAVEIGAR frumsýnd á annan dag jóla

Gamanmyndin Guðaveigar úr smiðju Markelsbræðra verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á annan dag jóla.

Guðaveigar fjallar um fjóra presta sem halda til Rioja á Spáni til að finna messuvín í betri gæðum en þekkst hefur á Íslandi hingað til. Þeir eru svo uppteknir við vinnu sína og smakkið að þeir missa af kraftaverkunum sem gerast allt í kringum þá.

Upptökur fóru fram á Spáni og Íslandi í maí og júní síðastliðnum.

Leikstjórar og handritshöfundar eru Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson. Með helstu hlutverk fara Hilmir Snær Guðnason, Halldór Gylfason, Þröstur Leó Gunnarsson, Sverrir Þór Sverrisson, Vivian Ólafsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR