spot_img

FJALLIÐ fyrsta myndin með græna vottun á Íslandi

Aðstandendur kvikmyndarinnar Fjallið eftir Ásthildi Kjartansdóttur hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að myndin hafi hlotið svokallaða Green Film vottun hér á landi, fyrst íslenskra kvikmynda. Myndin verður frumsýnd 1. nóvember.

Í fréttatilkynningu segir:

Íslenskur kvikmyndaiðnaður hefur nú stigið stórt skref í átt að sjálfbærri framtíð með fyrstu Green Film vottuninni hérlendis. Kvikmyndin Fjallið, skrifuð og leikstýrt af Ásthildi Kjartansdóttur, er framleidd með viðmið Green Film að leiðarljósi, sem markar nýtt upphaf í umhverfisvænni framleiðsluháttum og setur staðal fyrir mælanlega sjálfbærni í framleiðsluferlinu.

Vottun Fjallsins: Tímamót í íslenskri kvikmyndagerð

Með Fjallinu hefur Ísland fengið sína fyrstu Green Film vottun. Það markar mikilvægt skref í átt að sjálfbærari kvikmyndagerð hérlendis. Framleiðendur og leikstjóri Fjallsins, í góðri samvinnu við leikara og tökulið, unnu markvisst að því að uppfylla strangar kröfur vottunarinnar, þar á meðal að þróa sjálfbærniáætlun og nýta umhverfisvæna ferðaáætlun.

„Hefðbundin kvikmyndaframleiðsla getur haft gríðarlegt kolefnisspor, einkum vegna flugferða, flutninga, rafmagnsnotkunar og úrgangs. Við settum okkur að draga úr orkunotkun, nota endurnýjanlega orkugjafa, lágmarka ferðalög, minnka pappírsnotkun, draga úr sóun og stuðla að sjálfbærari vinnubrögðum á öllum sviðum,“ sagði Sigríður Rósa Bjarnadóttir, grænstjóri myndarinnar.

„Við vildum minnka kolefnisspor framleiðslunnar og samtímis stuðla að því að geta mælt og staðfest árangurinn hérlendis og erum stolt yfir að það tókst. Árangurinn liggur ekki allur í augum uppi, en var einna sýnilegastur á tökustað þar sem engin einnota plastílát, diskar, glös eða hnífapör voru notuð fyrir mat og drykk. Það var því bæði snyrtilegra á tökustað en oft áður og afgerandi minna sorp að sjá um í lok dags.“ bætti framleiðandinn Anna Guðbjörg Magnúsdóttir við.

„Þetta er i annað sinn sem ég geri græna kvikmynd, hin fyrri fékk Baftavottun erlendis. Ég afar ánægð með að gera aðra græna mynd og að hún sé vottuð á Íslandi” segir Ásthildur Kjartansdóttir leikstjóri.

KPMG á Íslandi, sem er leiðandi þekkingarfyrirtæki á sviðum endurskoðunar og ráðgjafar, var vottunarúttektaraðili og staðfesti að Fjallið uppfyllti öll skilyrði Green Film vottunar.

„Við hjá KPMG erum stolt að hafa tekið þátt í þessu verkefni með Fjallinu. Þetta er merkilegt skref í átt að sjálfbærari kvikmyndagerð og viljum við sérstaklega hrósa Fjallinu fyrir að vera fyrst á Íslandi til að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni,“ sagði Lára Portal, sérfræðingur í sjálfbærniráðgjöf hjá KPMG, vottuðum úttektaraðila fyrir Green Film Rating System á Íslandi.

Ávinningur fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað

Green Film vottunin er í takt við stefnumörkun Kvikmyndastefnu 2020-2030, sem leggur áherslu á sjálfbærni í kvikmyndagerð. Með vottun Fjallsins er Ísland í stöðu til að verða leiðandi í sjálfbærri kvikmyndagerð, en markmiðið er að fleiri verkefni fylgi í kjölfarið. Þetta mun ekki aðeins bæta umhverfisvitund í greininni heldur einnig styrkja ímynd landsins sem stað nýsköpunar og lista.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR