spot_img

ELSKLING Lilju Ingólfsdóttur opnunarmynd RIFF

Elskling eftir hina norsk-íslensku Lilju Ingólfsdóttur er opnunarmynd RIFF í ár. Lilja verður gestur hátíðarinnar.

Óhætt er að segja að myndin hafi slegið í gegn, en hún fékk standandi lófatak á hinni virtu kvikmyndahátíð í Karlovy Vary í Tékklandi fyrr í sumar og hreppti þar fimm verðlaun, segir í tilkynningu frá RIFF.

“Móttökurnar eru eiginlega óraunverulegar,” segir Lilja sjálf, stödd á kvikmyndahátíðinni Cinefest í Búdapest, en búið að selja myndina til tuttugu landa og er ekkert lát á. “Ég er eiginlega hálfringluð. Það er verið að bjóða mér á hátíðir út um allan heim,” bætir hún við.

Elskling eins og heiti myndarinnar er á norsku, eða Elskuleg á íslensku (e. Loveable), er frumraun Lilju á hvíta tjaldinu, en verkið var frumsýnt fyrr á árinu í Osló og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla athygli fyrir tilfinningarík efnistök og einstaka túlkun aðalleikkonu myndarinnar, Helgu Guren sem samkvæmt umsögn Variety þykir sýna einstakan kjark (e. gutsy performance) í hlutverki Maríu sem reynir að sinna fjórum börnum sínum af álíka metnaði og starfsframanum á meðan seinni eiginmaður hennar, Sigmund, er á stöðugum ferðalögum. Dag einn sinnast þeim aftur á móti heiftarlega sem verður til þess að karlinn fer fram á skilnað.

“Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu,” útskýrir Lilja. “Ég og maðurinn minn til fimmtán ára lentum í hjónabandskrísu á sínum tíma, eins og gengur – og þaðan er fyrirmyndin komin,” heldur hún áfram, en ekki einasta búa þau saman, enn þann dag í dag, heldur eiga þau fjögur börn og vinna náið saman; Øystein Mamen er nefnilega tökumaður bíómyndarinnar sem hér er til umfjöllunar.

Variety segir enn fremur í gagnrýni sinni um þetta byrjendaverk Lilju að þar lifni við „egghvasst tilfinningadrama“ (e. emotionally jagged) og enn fremur að myndin sé “óvenjuleg og snjöll saga sem leiti svara við því af hverju annað hjónabandið í röð fari eins og það fyrra, og hverjum, ef einhverjum, það sé að kenna.“

Hún segir fjölmarga áhorfendur samsama sig myndinni. “Þeir segja hana nístandi sanna. Ég hef ekki undan að tala við konur sem segja mér óðamála að myndin sé um dóttur þeirra eða mömmu þeirra,” segir Lilja og bætir því við að það sé eins og efniviðurinn hitti fyrir réttu taugarnar. Það séu enn ein ummælin.

“Ætli ég sé ekki búin að vera undirbúa þessa mynd í meira og minna sex ár, eða allt frá 2018,” rifjar Lilja upp, en hún á að baki tugi stuttmynda frá því hún útskrifaðist úr kvikmyndanámi frá London Film School og síðar Famu í Prag vorið 2001. Elskling er fjórða kvikmyndahandritið í fullri lengd sem hún skrifar.

Hún býr í Osló með Øystein og börnum þeirra hjóna, flutti þangað níu ára gömul frá Íslandi á níunda áratug síðustu aldar, dóttir Tone Myklebost sem fylgist nú með velgengni dóttur sinnar á kvikmyndahátíðinni í Búdapest og víðar um Evrópu, og Ingólfs heitins Margeirssonar, blaðamanns og rithöfundar sem lést vorið 2011.

Og hún hlakkar til að koma “heim” á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík, síðar í september – og sýna landsmönnum þessa bíómynd sína sem er ein sú umtalaðasta í Evrópu nú um stundir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR