Hlynur Pálmason gefur út HARMLJÓÐ UM HEST

Hlynur Pálmason leikstjóri og myndlistarmaður hefur sent frá sér ljósmyndabók, Harmljóð um hest. Í bókinni er að finna 80 ljósmyndir sem sýna hestshræ brotna niður og samlagast jörðinni.

Myndaröðin kom einnig við sögu í kvikmynd Hlyns, Volaða land.

Sýning á myndunum ásamt videoinnsetningu hefst í Ljósmyndasafni Reykjavíkur laugardaginn 15. júní.

Á vef Ljósmyndasafnsins segir:

Hlynur hefur lengi haft áhuga á að kanna hvernig umhverfið mótar okkur, hversu nátengd við erum náttúrunni og hvernig hún endurspeglar hugsanir okkar og tilfinningalíf. Íslenski klárinn hefur verið órjúfanlegur hluti af íslenskri menningu, vinur mannsins og vinnuþjarkur, í aldanna rás. Harmljóð um hest er að sögn Hlyns sjónrænn sorgarsálmur, eins konar virðingarvottur til íslenska hestsins sem spilað hefur veigamikið hlutverk í mótun og sögu Íslands allt frá landnámsöld. Verkið er að sama skapi hugleiðing Hlyns um hið mannlega og hið náttúrulega, hvernig ólík blæbrigði veðráttu og tilfinninga birtast og breytast frá einni árstíð til annarrar, og andstæðir pólar eins og birta og myrkur, mýkt og harðneskja, fegurð og ljótleiki móta bæði náttúru og einstaklinga.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR