Í nýjum Menningarvísum Hagstofu Íslands kemur fram að kvikmynda- og sjónvarpsgeirinn er umfangsmestur menningargreina á Íslandi, hvort sem litið er til rekstrartekna, útflutningstekna eða fjölda starfsmanna. Þá eru heildar launagreiðslur á pari við fjölmiðla og hönnun/arkitektúr.
Menningarvísar Hagstofunnnar eru hagrænir mælikvarðar um skapandi greinar og menningu í íslensku atvinnulífi og hagkerfi. Þeim er ætlað að halda utan um tölulegar upplýsingar í menningargreinum á Íslandi til að kortleggja umfang þeirra frá ári til árs. Nánar má fræðast um þá hér.
Menningargreinarnar tíu eru:
- bókmenntir
- fjölmiðlar
- hönnun og arkitektúr
- kvikmyndir og sjónvarp
- listnám
- menningararfur
- myndlist
- sviðslistir
- tónlist
- tölvuleikir
Eftirtaldir menningarvísar hafa verið birtir:
- fjöldi starfandi
- launasumma
- fjöldi rekstraraðila
- rekstrartekjur
- þjónustuviðskipti við útlönd
Skoða má hvern Menningarvísi fyrir sig hér fyrir neðan, en til að skoða gögnin frá ári til árs með nákvæmari hætti er hægt að fara á upprunalega vefslóð á vef Hagstofunnar með því að smella á hlekkinn undir hverri mynd. Smellið á myndirnar til að stækka þær.