Í dag hefst norræn kvikmyndaveisla í Bíó Paradís í tilefni af kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs. Hægt verður að nálgast allar tilnefndar myndir á vef kvikmyndahússins en þar er unnið hörðum höndum að því að koma á fót streymisveitu.
RÚV greinir frá:
Bíó Paradís opnaði aftur um miðjan september og hefur staðið opið þrátt fyrir hertar samkomutakmarkanir. Sýningum hefur verið fækkað og færri miðar seldir á hverja sýningu. „Það er svolítið skrýtið að vera með opið bíó þegar það er 20 manna fjöldatakmark en við höfum ákveðið að láta það ganga,“ segir Áslaug Torfadóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradísar.
Til að koma til móts við kvikmyndaunnendur sem sjá sér ekki fært að fara í bíó, eða komast einfaldlega ekki að, stendur til að bjóða upp á sýningar á vef kvikmyndahússins. „Við vinnum að því hörðum höndum að stofna eigin streymisveitu þannig að allar Bíó Paradís myndirnar verði aðgengilegar á síðunni okkar. Þó fólk geti ekki komið í Bíó Paradís þá geti Bíó paradís komið til þeirra.“
Í dag hefjast þar sýningar á kvikmyndum sem tilnefndar eru til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Hver mynd verður aðeins sýnd einu sinni í kvikmyndahúsi og miðaframboð er takmarkað en þær verða allar aðgengilegar á vef Bíó Paradísar frá 22. – 26. október.
Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Bergmál, er tilnefnd fyrir Íslands hönd. Áslaug segir hana skera sig frá öðrum tilnefndum myndum og forvitnilegt sé að horfa á hana í samanburði við þær. „Hún er ekki með línulegan söguþráð, hún er meira í heimildamyndarstíl og dregur upp svipmyndir af íslensku þjóðlífi.“
Verðlaun Norðurlandaráðs verða afhent á þriðjudaginn, 27. október, í sérstakri hátíðarútsendingu á RÚV. Norðurlandaráð veitir ár hvert fimm verðlaun til þess að vekja athygli á bókmenntum, tungumáli, tónlist og kvikmyndum Norðurlandanna ásamt nýskapandi aðgerðum á sviði umhverfismála. Fram koma meðal annarra Víkingur Heiðar Ólafsson, hljómsveitin Of monsters and men og Íslenski dansflokkurinn.
Sjá nánar hér: Bíó paradís vinnur að því að stofna eigin streymisveitu