Andið eðlilega eftir Ísold Uggadóttur hlaut á dögunum Roger Ebert-verðlaunin fyrir bestu frumraun leikstjóra á Traverse City-kvikmyndahátíðinni, sem haldin er í Michigan í Bandaríkjunum.
Verðlaunin eru kennd við hinn virta kvikmyndagagnrýnanda Roger Ebert. Stofnandi kvikmyndahátíðarinnar Traverse City er bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn og aðgerðasinninn Michael Moore.