Hrútar, Webcam og Fúsi eru allar á hægri siglingu þessa dagana og má gera ráð fyrir að þær eigi aðeins fáeinar vikur eftir í kvikmyndahúsum.
Hrúta sáu 272 gestir um nýliðna helgi, þá tólftu, sem er reyndar ögn meira en helgina á undan. Alls komu 334 í vikunni en heildarfjöldi gesta nemur nú 19.488 manns.
Webcam fékk 36 gesti um helgina en alls 131 gest yfir vikuna. Alls hefur myndin fengið 2.702 gesti.
Fúsi er nú í Bíó Paradís. Myndin fékk 118 gesti um helgina en um vikuaðsókn er ekki vitað. Heildarfjöldi gesta er komin í 12.216 manns.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 10.-16. ágúst 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
12 | Hrútar | 334 | 19.488 |
5 | Webcam | 131 | 2.702 |
21 | Fúsi | 118 | 12.216 |