Þorbjörn Ágúst Erlingsson hljóðmaður er fallinn frá, 59 ára að aldri. Hann var einn af reyndustu hljóðupptökumönnum íslenskrar kvikmyndagerðar og kom sem slíkur að vel á fjórða tug kvikmynda allt frá 1987.
Þorbjörn, eða Tobbi eins og hann var yfirleitt kallaður, fæddist 17. september 1955. Hann lauk námi í hljóðupptökum frá Danska kvikmyndaskólanum 1987 og hóf sama ár störf við íslenska kvikmyndagerð.
Meðal mynda sem hann vann að má nefna Skytturnar, Ingaló, Agnesi, Veggfóður, Benjamín dúfu, Blossa/810551, Perlur og svín, Maríu, Stikkfrí, Dansinn og nú siðast Algjöran Sveppa og töfraskápinn frá 2011. Lista yfir verk hans má finna hér.
Þorbjörn varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 28. mars síðastliðinn.