Heimildakvikmynd Kára G. Schram Jöklarinn, brot úr sögu Þórðar Halldórssonar mesta lygara allra tíma – eða hvað? verður frumsýnd í Bíó Paradís 21. nóvember en almennar sýningar hefjast daginn eftir.
Myndin segir sögu Þórðar Halldórssonar frá Dagverðará – eins frægasta ”Jöklara”, síns tíma – og þeirra ótrúlegu ævintýra sem hann rataði í á langri og strangri ævi.
Þórður var allt í senn: Sægarpur, refaskytta, listmálari, rithöfundur og skáld, mannvinur, náttúruverndarsinni og sagnaþulur. Umfram allt er hann þó þjóðsagnapersóna og þjóðhetja sem vert er að minnast. Hann hélt á lofti og kenndi okkur að meta náttúruna og þjóðararf fortíðar sem svo margir eru búnir að tapa eða gleyma. Hér var frjór andi á ferð sem miðlaði og gaf óspart af auðæfum sínum til að öðrum liði betur.
Hér má sjá nýja stiklu myndarinnar.