Guðrún Lína Thoroddsen, Bjarney Lúðvíksdóttir og Þórunn Erna Clausen vinna nú að heimildamyndinni Tezaab (Sýra á hindi) sem fjallar um konur á Indlandi sem orðið hafa fyrir sýruárásum og baráttu þeirra fyrir réttindum sínum.
Verkefnið leitar núhópfjármögnunar á Karolina Fund og má skoða síðu verkefnisins hér: TEZAAB – Surviving Acid Attack – Karolina Fund.