Bíó Paradís og Goethe Institut í Danmörku standa fyrir Þýskum kvikmyndadögum í sjöunda sinn dagana 10. – 19. febrúar í samstarfi við Þýska sendiráðið. Að þessu sinni verða á boðstólnum sex nýjar myndir, en hátíðin hefst með hinni margumtöluðu Toni Erdmann í leikstjórn Maren Ade, sem meðal annars hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna.