Iceland Documentary Film Festival fer fram á Akranesi í fyrsta sinn dagana 17.-21. júlí næstkomandi. Á dagskrá eru um 40 heimildamyndir frá öllum heimshornum, en auk þess verða sérstakar sýningar á verkum Þorgeirs Þorgeirsonar í samvinnu við Kvikmyndasafn Íslands.