Nítjándu Skjaldborgarhátíðinni er lokið. Alls voru 10 myndir frumsýndar á hátíðinni, auk þess sem sex verk í vinnslu voru kynnt, þrjár stuttar heimildamyndir voru sýndar utan keppni og Kvikmyndasafn Íslands sýndi úrval verka Magnúsar Jóhannssonar.
Fimm heimildamyndir í fullri lengd og fimm heimildastuttmyndir verða frumsýndar á Skjaldborgarhátíðinni í ár. Að auki verður sýnt úr sex verkum í vinnslu. Hátíðin fer fram á Patreksfirði dagana 22.-25. maí.
Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina 22.-25.maí. Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir verk til frumsýningar og verk í vinnslu til kynningar á hátíðinni.