Rams, ástralska útgáfan af Hrútum Gríms Hákonarsonar með Sam Neill í aðalhlutverki, er að gera það gott í kvikmyndahúsum Ástralíu þessa dagana. Myndin opnaði í efsta sæti og hefur nú verið sýnd í fimm vikur við miklar vinsældir.
Tökur eru hafnar á kvikmyndinni Rams í Ástralíu, en myndin er endurgerð á Hrútum Gríms Hákonarsonar. Hinn heimskunni ástralski leikari Sam Neill fer með annað aðalhlutverkið, Gumma, sem Sigurður Sigurjónsson lék í mynd Gríms. Michael Caton fer með hlutverk Kidda sem Theódór Júlíusson lék. Verkið er sagt "endursköpun" (reimagining) í fréttatilkynningu frá framleiðendum.