Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson var síðastliðinn fimmtudag sæmdur heiðursverðlaunum Raimondo Rezzonico á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Locarno í Sviss. Verðlaunin eru veitt árlega einum framleiðanda eða framleiðslufyrirtæki fyrir framlag sitt til alþjóðlegrar kvikmyndagerðar.