Stuttmyndin Ljósöld eftir Guðmund Garðarsson verður sýnd á Gautaborgarhátíðinni sem hefst eftir nokkra daga. Stikla myndarinnar, sem virðist dystópískur sæ-fæ tryllir, hefur verið opinberuð og má sjá hér.
Fjöldi íslenskra kvikmynda verða sýndar á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg, sem fer fram dagana 27. janúar til 6. febrúar. Gautaborgarhátíðin er nú haldin í 40. sinn og er stærsta kvikmyndahátíð Norðurlanda. Verkin eru sex talsins; kvikmyndirnar Hjartasteinn, Rökkur og Sundáhrifin, sjónvarpsþáttaröðin Fangar og stuttmyndirnar Ungarog Ljósöld