Ástæða er til að vekja athygli á því að meistaraverk Francois Truffaut, Jules et Jim frá 1962, er meðal þeirra mynda sem sýndar eru á Frönsku kvikmyndahátíðinni sem stendur nú yfir í Háskólabíó til 2. febrúar n.k.
Hin árlega Franska kvikmyndahátíð fer fram í Háskólabíói 23. janúar - 2. febrúar. Opnunarmyndin að þessu sinni er gamanmyndin Ömurleg brúðkaup sem hefur slegið í gegn víða um heim.