Þriðji þátturinn í 4. syrpu Endeavour var sýndur á ITV í Bretlandi á sunnudagskvöld. Þættinum var leikstýrt af Berki Sigþórssyni og tökumaður var G. Magni Ágústsson. Stiklu þáttarins má sjá hér.
Börkur Sigþórsson leikstjóri og G. Magni Ágústsson tökumaður eru þessa dagana við tökur á þætti úr bresku spennuþáttaröðinni Endeavour, sem fjallar um hinn kunna lögreglumann Inspector Morse á yngri árum.