Magnús Jochum Pálsson skrifar á Vísi um Dimmalimm eftir Mikael Torfason og segir hana meðal annars líða "ofurhægt vegna klisjukennds handrits, skorts á framvindu og langdreginna teygðra sena."
Díana Sjöfn Jóhannsdóttir skrifar í Morgunblaðið um Dimmalimm eftir Mikael Torfason og segir hana meðal annars skilja lítið eftir sig annað en spurningar og vangaveltur um sjónarhorn og stíltilraunir í kvikmyndagerð.
Dimmalimm í leikstjórn Mikaels Torfasonar verður frumsýnd 14. febrúar. Mikael skrifar jafnframt handritið og sá um kvikmyndatöku. Með aðalhlutverk fer eiginkona hans, Stefanía Berndsen. Myndin var tekin upp á covid tímanum í Vínarborg.