Elísabet Ronaldsdóttir klippari ræðir vinnu sína við kvikmyndina Atomic Blonde, með Charlize Theron í aðahlutverki, við kollega sinn Steve Hullfish sem heldur úti dálkinum Art of the Cut á vefnum Pro Video Coalition. Þetta er afar ítarlegt og áhugavert spjall tveggja klippara þar sem bæði er farið í einstök atriði sem lúta að myndinni sjálfri sem og víðara spjall um hlutverk klipparans almennt.
Elísabet Ronaldsdóttir er klippari hasarmyndarinnar Atomic Blonde með Charlize Theron í aðalhlutverki. Myndin er væntanleg innan skamms. Elísabet mun síðan klippa ofurhetjumyndina Deadpool 2 með Ryan Reynolds en báðar myndirnar eru að verulegu leyti gerðar af sama teymi og stóð á bakvið harðhausamyndina John Wick með Keanu Reeves.