Christopher Llewellyn Reed skrifar í vefmiðilinn Film Festival Today um heimildamyndina Tímabundið skjól (Temporary Shelter) eftir Anastasiia Bortuali, sem nú er sýnd á Toronto hátíðinni. Reed gefur henni fjórar stjörnur.
Úkraínska kvikmyndagerðarkonan Anastasiia Bortuali fékk hæli á Íslandi og segir sögu samlanda sinna sem eins er komið fyrir. Toronto hátíðin stendur dagana 5.-15. september.