[Stikla] Sýningar hafnar á JÓHÖNNU AF ÖRK Hlyns Pálmasonar

Jóhanna af Örk er 62 mínútna kvikmynd sem gerist í sama heimi og fyrri mynd hans, Ástin sem eftir er.

Ástin sem eftir er, með Sögu Garðarsdóttur og Sverri Guðnasyni í aðalhlutverkum, var frumsýnd síðasta sumar og hlaut afar góðar viðtökur bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Myndin var jafnframt sú vinsælasta í Bíó Paradís á síðasta ári. Hún fjallaði um listamanninn Önnu og sjómanninn Magga, sem eru nýlega skilin en enn í tilfinningalegu millibilsástandi, þar sem lífið heldur áfram með sínum hætti.

Í Jóhönnu af Örk færist sjónarhornið yfir á börn þeirra, sem eru leikin af Ídu Mekkín Hlynsdóttur, Þorgils Hlynssyni og Grími Hlynssyni. Myndin fylgir þeim í gegnum árstíðirnar þar sem þau reisa riddarafígúru sem þau nota sem skotmark. Í gegnum leik, sköpun og eyðingu dregur myndin upp ljóðræna mynd af uppvexti og þeim umbreytingum sem honum fylgja.

Myndin var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Sebastian á síðasta ári. Framleiðendur eru Anton Máni Svansson fyrir STILL VIVID og Katrin Pors fyrir Snowglobe, ásamt meðframleiðendunum Mikkel Jersin og Didar Domehri.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR