Magnús skrifar meðal annars:
Undir ísnum er gerð fyrir lítinn pening af ástríðufullu fólki en lítur þrátt fyrir það frekar vel út með prýðilega myndatöku, sannfærandi leikmynd og fína kvikmyndatónlist. Sagan er í sjálfu sér ekki hræðileg en handritið er uppfullt af klisjum, atburðarrásin ótrúverðug og persónusköpunin grautþunn.
Það sem ýkir þessa þætti handritsins er leikur Tónhyls-drengjanna sem er svo flatur og stirður að flestallar línurnar verða sjálfkrafa fyndnar. Hér er þó ekki við þá að sakast, betri texta og leikstjórn hefði þurft til að hjálpa þeim að skila almennilefum frammistöðum.
Undir ísnum fær eina stjörnu fyrir fína framleiðsluna og fyrir allan hláturinn fær hún aðra. Þetta er algjör steypa en hún er skemmtileg steypa og mögulega er hér tilvonandi költklassík.
Umsögnina alla má lesa hér.













