Þetta er í þriðja sinn á skömmum tíma sem Bíó Paradís lendir á listum alþjóðlegra fjölmiðla yfir helstu kvikmyndahús heims. Fyrir um ári var bíóið á lista Variety og fyrir fyrir nokkrum vikum á lista Time Out.
Í umsögn Financial Times er Bíó Paradís lýst sem einstaklega hlýlegum og aðlaðandi stað með framúrskarandi kvikmyndadagskrá, þar sem lögð er áhersla á íslenskar og alþjóðlegar kvikmyndir. Sérstaklega er bent á anddyrið, þar sem kaffihús og bar tekur á móti gestum og að upplifunin sé þannig að gestir finni strax að þeir séu komnir á réttan stað.
Á lista Financial Times má finna nokkur af þekktustu og glæsilegustu kvikmyndahúsum heims, þar á meðal hið heimsþekkta TCL Chinese Theatre í Hollywood, Art Deco-perlan Pathé Tuschinski í Amsterdam og Le Grand Rex í París.
Umfjöllun Financial Times um Bíó Paradís má sjá hér að neðan.














