Yrsa segir (smelltu á hlekkina til að fá frekari upplýsingar um myndina):
To the West, In Zapata er ein besta mynd sem ég hef séð síðustu ár myndin er eftir spænskan leikstjóra sem hefur verið búsettur á Kúbu síðasta áratug eða svo. Ótrúlega sterk mynd, með stórt hjarta, ótrúlegt hljóð og ein sterkasta sena sem ég hef séð. Erum svo heppin að David Bim verður viðstaddur. 27 apríl. Ekki missa af því.
Always er mynd sem vann á CPH:DOX í fyrra og er ótrúlega falleg.
Songs of Slow Burning Earth hafði mikil áhrif á mig, listræn og sterk.
With Hassan in Gaza er eftir Kamal Aljafari en An Unusual Summer eftir hann er í miklu uppáhaldi og þessi mynd er einstök, mæli með að þið lesið um hana en myndin var tekin upp 2001 og hann fann 3 Mini DV spólur og klippti myndina, mjög sterk og áhrifamikil mynd og Kamal er mjög áhugaverður palestínskur leikstjóri.













