Hjálmar H. Ragnarsson látinn

Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld lést 13. mars síðastliðinn, 73 ára að aldri. 

Hjálmar var forystumaður í uppbyggingu lista á Íslandi í áratugi og þar á meðal fyrsti rektor Listaháskóla Íslands.

Hann hafði umsjón með tónlist í kvikmynd Hilmars Oddssonar, Tár úr steini, sem fjallaði um tónskáldið Jón Leifs og konu hans Annie. Hann skrifaði einnig handritið ásamt Hilmari og Sveinbirni Baldvinssyni. Hjálmar samdi einnig tónlist fyrir tvær aðrar myndir Hilmars, Sporlaust og Kaldaljós. Hann samdi einnig tónlist fyrir ýmis önnur kvikmyndaverk, líkt og sjá má hér.

Hjálmar fæddist á Ísafirði 23. september 1952, sonur hjónanna Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H. Ragnar. Faðir hans var skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði sem hýstur var að stórum hluta á heimili þeirra svo hann var alla tíð umkringdur tónlist. Eftirlifandi eiginkona Hjálmars er Ása Richardsdóttir liststjórnandi og hann lætur eftir sig þrjú uppkomin börn.

Á vef Listaháskóla Íslands segir um Hjálmar:

Á farsælum tónlistarferli sínum skapaði Hjálmar fjölbreytt og áhrifamikil tónverk: kórverk, raftónlist, kammerverk, hljómsveitarverk, óperur og tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir. Verk hans hafa mótað íslenska tónlistarsenu en meðal þeirra má nefna Kvöldvísur um sumarmál, Messu, og ýmis hljómsveitarverk sem teljast til lykilverka íslenskrar samtímatónlistar. Sem kennari starfaði Hjálmar víða, meðal annars við Tónlistarskólann á Ísafirði, Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Hann miðlaði jafnan af hlýju, fagmennsku og ómældri ástríðu fyrir tónlistinni.

Fyrsti rektor Listaháskóla Íslands

Við stofnun Listaháskóla Íslands árið 1998 var Hjálmar ráðinn fyrsti rektor skólans. Hann gegndi því embætti í fimmtán ár, til ársloka 2013. Undir hans stjórn var lagður grunnur að starfsemi skólans og skapaður metnaðarfullur farvegur fyrir listnámi á háskólastigi. Hjálmar trúði á mikilvægi listarinnar sem burðarstoðar samfélags og lagði kapp á að efla tengingu skólans við íslenska menningarheima og alþjóðleg samstarfssvið. Árið 2016 var hann gerður að fyrsta heiðursdoktor Listaháskóla Íslands – viðurkenningu sem endurspeglar djúpstætt og varanlegt framlag hans til skólans.

Leiðtogahlutverk í listalífi þjóðarinnar

Hjálmar var ekki aðeins tónskáld og fræðimaður heldur einnig áhrifamikill talsmaður listamanna og gegndi mörgum lykilhlutverkum á starfsævinni, m.a. sem formaður Tónskáldafélags Íslands 1988-1992, forseti Bandalags íslenskra listamanna 1991-1998, sat í stjórn STEFs, í stjórn Íslenskrar tónverkamiðstöðvar 1983-1988, í stjórn listamannalauna 2001-2003 og Menningarsjóðs SPRON 1996-2006. Með störfum sínum þar stuðlaði hann að bættum starfsskilyrðum listafólks og skýrari stöðu lista í samfélaginu.

Fjölmargar viðurkenningar hlutu honum virðingu og álit, meðal annars riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, Grímuverðlaun fyrir leikhústónlist og heiðursviðurkenningu STEFs.

Arfleifð og minning

Listaháskólinn blés til hátíðar í tilefni sjötugsafmælis Hjálmars árið 2022 þar sem Þorbjörg Daphne Hall, dósent í tónlistarfræðum, ræddi við hann um verk hans og listrænan feril. Herdís Anna Jónasdóttir og Áshildur Haraldsdóttir léku brot úr Noktúrnu fyrir fjölrása rafhljóð, sópran-rödd og altflautu (1977 / 2022) og Sif Tulinius lék brot úr Partítu fyrir sólófiðlu (2020) eftir Hjálmar og sögðu frá upplifunum sínum af verkunum. Hjá Listaháskólanum verður minning Hjálmars varðveitt í þeirri faglegu, metnaðarfullu og skapandi menningu sem hann lagði grunn að á fyrstu árum skólans. Leiðtogastarf hans og sjónarhorn á mikilvægi lista í samfélaginu hafa varanleg áhrif á íslenskt mennta- og menningarlíf.

Listaháskólinn vottar fjölskyldu Hjálmars samúð fyrir hönd núverandi og fyrrverandi starfsfólks og nemenda.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR