Dagskrána í heild má skoða hér.
Kvikmyndir
Fyrst kvikmyndirnar. Írskt þema ríkir þetta árið.
Christy – opnunarmynd
19. mars kl. 19:00
Írsk verðlaunamynd sem fjallar um tvo bræður sem reyna að brúa bilið sín á milli í úthverfi Cork. Næm og áhrifarík saga um fjölskyldu, fortíð og ný tækifæri.
The Commitments
21. mars kl. 21:00 + Q&A
23. mars kl. 17:00
Sérstök stemningssýning á The Commitments sem er klassísk og kraftmikil tónlistarmynd um hóp ungra Dublin-búa sem stofna soul-hljómsveit með stórar drauma og enn stærri egó. Fyndin, hrá og hjartnæm saga um tónlist, metnað og vináttu. Andrew Strong, aðalleikari og söngvari myndarinnar, mætir í samtal eftir sýninguna 21. mars.
The Voice of Hind Rajab + Q&A
27. mars kl. 17:00
Áhrifamikið heimildardrama byggt á raunverulegum símtölum barns í lífshættu. Mynd sem skilur engan eftir ósnortinn.
Jóhanna af Örk – lokamynd
29. mars kl. 19:00
Lokamynd hátíðarinnar er nýjasta verk Hlyns Pálmasonar. Leikstjórinn situr fyrir svörum að sýningu lokinni.
Bransadagar
Dagskrá Bransadaga í heild má skoða hér.
Helstu uppákomur:
Pallborð með formönnum fagfélaga í íslenskri kvikmyndagerð – stýrt af Wendy Mitchell
28. mars kl. 13 – Norræna húsið
Umræður um tækifæri og áskoranir sem blasa við í íslenskri kvikmyndagerð.
Framtíð kvikmynda við N-Atlantshaf
28. mars kl. 14 – Norræna húsið
Pallborðsumræða með fulltrúum kvikmyndasjóða í Færeyjum, Íslandi og á Grænlandi.
Börn náttúrunnar – Ari Kristinsson kvikmyndatökustjóri heiðraður
28. mars kl. 16:30 – Bíó Paradís
ÍKS, félag íslenskra kvikmyndatökustjóra, heiðrar Ara Kristinsson með sýningu á Börnum náttúrunnar, þar sem Ari stýrði kvikmyndatöku. Ari mun sitja fyrir svörum eftir sýninguna.













