Magnús skrifar:
Dimmalimm er heimagerð fjölskyldumynd sem var tekin upp í Covid-faraldrinum og hefði annað hvort mátt stytta niður í korters stuttmynd eða gefa út frítt á vefnum. Handrit myndarinnar er næfurþunnt og stendur engan veginn undir klukkutíma lengdinni, textinn er klunnalegur og senurnar bæði einsleitar og endurtekningarsamar. Þá er birtingarmynd geðsjúkdóma í myndinni sérstaklega steríótýpísk og klisjukennd.













