Í umsögn segir meðal annars að kvikmyndahúsið á hjara veraldar sé draumastaður fyrir kvikmyndaunnandann, staðsett skammt frá sjónum. Það leggi áherslu á að sýna verk íslenskra kvikmyndagerðarmanna samhliða fjölbreyttu úrvali alþjóðlegra kvikmynda, heimildarmynda og stuttmynda.
Á listanum má finna mörg af frægustu kvikmyndahúsum heims, eins og Pathé Tuschinski í Amsterdam, TCL Chinese Theatre í Hollywood, þar sem margar af stærstu frumsýningum kvikmyndasögunnar hafa farið fram, og Le Grand Rex í París, eitt glæsilegasta kvikmyndahús Evrópu.
Listann má finna hér.













