Myndin fjallar um vinahóp sem svindlar sér inn í dularfullt verkefni þar sem þeir þurfa að ná í demant á Suðurskautið í gamla sovéska námu. Í fyrstu virðist verkefnið vera einfalt en fljótlega kemur í ljós að það er meira sem býr undir ísnum en einungis demanturinn.
Hópurinn Tónhylur akademía stendur að myndinni. Í aðalhlutverkum eru meðlimir Tónhyl akademíu, Helgi Trausti Stefánsson, Kristján Saenz, Maron Birnir Reynisson, Theodór Gísli Sigurgeirsson, Egill Airi, Lindi Banushi, Stefán Logi Hermannsson, Ísak Örn Friðriksson, Ívar Páll Arnarsson og Tryggvi Þór Torfason. Auk þeirra fara Vivian Ólafsdóttir og Þór Tulinius með hlutverk í myndinni.
Kristján Sturla Bjarnason skrifar handritið og leikstýrir en Atli Þór Einarsson sér um tölvubrellur og kvikmyndatöku, Brynjar Ingi Unnsteinsson um hljóð og Guðfinna Birta Valgeirsdóttir er framleiðandi. Myndin er framleidd með Fenrir films.














