45 alþjóðleg verðlaun til íslenskra kvikmyndaverka 2025

Íslenskar kvikmyndir unnu til 45 verðlauna á alþjóðlegum vettvangi árið 2025. O (Hringur) eftir Rúnar Rúnarsson hlaut flest þeirra, 19 talsins.

Hér að neðan er að finna samantekt á alþjóðlegum verðlaunum til íslenskra kvikmynda 2025.

Verði lesendur varir við villur eða að upplýsingar vanti, er hægt að koma ábendingum á framfæri hér.

Leiknar kvikmyndir

Ljósbrot

  • Drekaverðlaunin sem besta norræna kvikmyndin á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg.

Ljósvíkingar

  • Besta leikna myndin á Kashish Pride Film Festival í Mumbai á Indlandi.
  • Arna Magnea Danks verðlaunuð fyrir besta leik í aðalhlutverki á Kashish Pride Film Festival í Mumbai á Indlandi.
  • Sérstök viðurkenning dómnefndar fyrir handritið á Kashish Pride Film Festival í Mumbai á Indlandi.
  • Áhorfendaverðlaunin á Mix – International Festival of LGBTQ+ Cinema and Queer Culture í Milanó á Ítalíu.
  • Arna Magnea Danks hlaut verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki á kvikmyndahátíðinni Out At The Movies í Winston Salem í Bandaríkjunum.
  • Áhorfendaverðlaun á Emdem Norderney hátíðinni í Þýskalandi.
  • Áhorfendaverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Ciné-Festival en Pays de Fayence í Frakklandi.

Ástin sem eftir er

Kuldi

  • Besta kvikmyndin á kvikmyndahátíðinni Scandi Fest í Tékklandi.

Heimildamyndir:

The Day Iceland Stood Still

  • Besta heimildamyndin á Victoria Film Festival í Kanada.
  • Áhorfendaverðlaunin á Thessaloniki Film Festival í Grikklandi.
  • Áhorfendaverðlaunin á Gimli International Film Festival í Kanada.
  • Áhorfendaverðlaunin á Noordeliijk Film Festival í Hollandi.
  • Sérstök viðurkenning á Peloponnisos International Documentary Film Festival í Grikklandi.

Strengur

Jörðin undir fótum okkar

  • Dómnefndarverðlaunin á DMZ International Documentary Film Festival í S-Kóreu.
  • Besta kvikmyndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tromsø í Noregi.

Stuttmyndir:

O (Hringur)

  • Dómnefndarverðlaunin á 23. alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Festival International Signes de Nuit í París.
  • Ingvar E. Sigurðsson valin besti  leikarinn á Clermont-Ferrand hátíðinni í Frakklandi.
  • Áhorfendaverðlaun alþjóðlegu stuttmyndahátíðarinnar í Tampere í Finnlandi.
  • Besta stuttmyndin á kvikmyndahátíðinni í Vilníus í Litháen.
  • Verðlaun kvikmyndagagnrýnenda í Québec í Kanada á REGARD, the Saguenay alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni.
  • Sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Urbino á Ítalíu.
  • Sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Friss Hús í Búdapest í Ungverjalandi.
  • Danzante verðlaunin, aðalverðlaun alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Huesca á Spáni.
  • Sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni IFF Art Film Festival í Košice í Slovakíu.
  • Ingvar E. Sigurðsson valinn besti leikarinn á alþjóðlegu Psarokokalo kvikmyndahátíðinni í Aþenu.
  • Ingvar E. Sigurðsson hlaut sérstök dómnefndarverðlaun fyrir leik sinn á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Courts Circuit 66 í Pýraneafjöllunum á Spáni.
  • Ingvar E. Sigurðsson hlaut áhorfendaverðlaun alþjóðlegu kvikmyndahátiðarinnar í Bueu á Spáni.
  • Besta stuttmyndin á Nordisk Panorama 2025.
  • Târgu Mureș verðlaunin á 33. Alter-native kvikmyndahátíðinni í Rúmeníu.
  • Sérstök dómnefndarverðlaun á Zeichen der Nacht hátíðinni í Berlín.
  • Sérstök viðurkenning á Festival Internazionale Segni della Notte á Ítalíu.
  • Ingvar E. Sigurðsson valinn besti leikarinn á Brussels Short Film Festival í Belgíu.
  • Besta myndin á Drim Short Film Festival í N-Makedóníu.
  • Besta alþjóðlega myndin á Drim Short Film Festival í N-Makedóníu.

Allt fyrir þig

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR