spot_img

[Stikla] DIMMALIMM eftir Mikael Torfason frumsýnd

Dimmalimm í leikstjórn Mikaels Torfasonar verður frumsýnd 14. febrúar. Mikael skrifar jafnframt handritið og sá um kvikmyndatöku. Með aðalhlutverk fer eiginkona hans, Stefanía Berndsen. Myndin var tekin upp á covid tímanum í Vínarborg.

Myndinni er svo lýst:

Dimmalimm er lauslega byggð á leikritinu Medeu eftir Euripides. Hinn forni harmleikur byggði á mýtunni um Jason og Medeu og fór fyrst á svið árið 431 fyrir Krist. Þetta er klassísk saga og þemað á enn full erindi. Medea er útlendingur sem svikin er af manni sínum Jason með þeim afleiðingum að hún missir vitið. Í Dimmalimm er Medea íslensk 35 ára gömul kona sem kemur heim af geðsjúkrahúsi og lokar sig inni íbúð í Vínarborg. Þetta er dramatísk myndum íslenska konu að glíma við geðveiki í erlendri borg.

“Í nokkur misseri var sífellt verið að loka okkur inn í íbúð með dætrum okkar þegar við bjuggum í Vín,” útskýrir Mikael um tilurð myndarinnar. “Svo við þriðja lockdown ákváðum við að gera eitthvað í stað þess að horfa á Netflix og ég settist niður og skrifaði handrit að bíómynd sem við skutum saman í íbúðinni okkar.”

Dætur Mikaels og Stefaníu, Ísold og Ída Berndsen, fara einnig með hlutverk í myndinni.

Hjónin bjuggu í Vínarborg þar sem Stefanía var fastráðinn leikkona við Burgtheater í Vín. Þau skipta nú tíma sínum milli Hollywood og Chicago eftir að hafa flutt til Bandaríkjanna ásamt dætrum sínum.

Dimmalimm var á dögunum frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í San Diego.

Myndin er sýnd í Bíó Paradís.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR