spot_img

[Stikla] Þáttaröðin VAKA hefst 29. janúar á Amazon Prime, væntanleg á RÚV

Sýningar á sænsk/íslensku þáttaröðinni Vaka hefjast á Amazon Prime 29. janúar. Fyrirhugað er að sýna þættina á RÚV síðar á árinu. Stikla er komin út.

Aðalhöfundur Vöku er Brynja Björk Garðarsdóttir sem skrifar einnig handrit ásamt Pauline Wolff. Henrik Georgsson leikstýrir þáttunum og Aliette Opheim og Jonas Karlsson eru í aðalhlutverkum. Þetta er samframleiðsluverkefni Amazon MGM Studios, Unlimited Stories, Sagafilm og Skybound Entertainment.

Þættirnir, sem gerast í Stokkhólmi, fjalla um útbreiðslu banvæns faraldurs sem veldur krónísku svefnleysi. Fylgst er með ráðherra í fjölmiðlakrísu sem berst við að halda landinu á réttum kili gegnum faraldurinn, sjúkraflutningakonu sem berst fyrir lífi eiginkonu sinnar og unglingsstúlku sem reynir að vernda ungan nágrannastrák frá fjölskyldu hans sem berst við hrikaleg áhrif sjúkdómsins. Þessar þrjár frásagnir fléttast síðan saman á meðan ótti og skelfing heltekur Stokkhólm og fangar íbúa borgarinnar í lifandi martröð.

Stiklu má skoða hér fyrir neðan. Athugið að stiklan er með sænsku tali án textunar. Fyrir neðan er eitt atriði úr fyrsta þætti.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR