spot_img

[Stikla] ELDARNIR

Stikla kvikmyndarinnar Eldarnir eftir Uglu Hauksdóttur er komin út. Sýningar hefjast í bíó 11. september.

Eldarnir fjallar um Önnu Arnardóttur, einn helsta eldfjallafræðing Íslands, sem stendur frammi fyrir tvennskonar hamförum: Eldgosi sem ógnar öryggi höfuðborgarbúa og ástarsambandi sem gæti eyðilagt hjónaband hennar.

Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Pilou Asbæk fara með aðalhlutverkin. Með önnur helstu hlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson, Jói Jóhannsson, Sigurður Sigurjónsson, Jörundur Ragnarsson, Þór H. Tulinius og Arndís Hrönn Egilsdóttir.

Ugla Hauksdóttir leikstýrir og skrifar handrit ásamt Markus Englmair og Sigríði Hagalín Björnsdóttur en verkið er byggt á samnefndri skáldsögu hennar.

Grímar Jónsson er aðalframleiðandi fyrir hönd Netop Films.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR