Deadline skýrir frá því að þáttaröðin hafi verið seld til yfir hundrað landa. Hún verður sýnd á Prime Video á Ameríkumarkaði og HBO Max mun sýna hana á Norðurlöndunum, sem og Spáni, Suðaustur Asíu, Niðurlöndum, Hong Kong og Taiwan. Ekki kemur fram hvenær sýningar hefjast á þessum efnisveitum.
Þáttaröðin hefur verið seld til fjölda annarra markaða í kjölfar vel heppnaðrar sýningar fyrir kaupendur í London á fyrrihluta ársins.













