Stockfish kallar eftir stuttmyndum í Sprettfiskinn

Kvikmynda- og bransahátíðin Stockfish hefur opnað fyrir innsendingar í Sprettfisk, stuttmyndakeppni hátíðarinnar. Hátíðin verður haldin dagana 3.–13. apríl í Bíó Paradís. Ný framkvæmdarstjórn hefur tekið við hátíðinni.

Í tilkynningu frá Stockfish segir:

Sprettfiskur er vettvangur fyrir efnilega kvikmyndagerðarmenn og veitir þeim tækifæri til að kynna verk sín fyrir innlendum og erlendum kvikmyndaáhorfendum. Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum, fyrir leiknar stuttmyndir, heimildastuttmyndir, tónlistarmyndbönd og tilraunakenndar stuttmyndir. Bestu stuttmyndirnar verða sýndar á RÚV og hljóta sigurvegararnir auk þess peningaverðlaun og aðgang að tækjabúnaði frá KUKL tækjaleigu.

Hámarkslengd myndanna er 30 mínútur, þær þurfa að vera íslenskar að uppruna (höfundur/leikstjóri og/eða framleiðandi þurfa að vera íslensk) og framleiðslu má ekki hafa verið lokið fyrir janúar 2024. Leikstjóri tónlistarmyndbanda þarf að vera íslenskur og lagið frumsamið. 20 valdar stuttmyndir verða sýndar á Sprettfisk.

Skilafrestur mynda er til 25. febrúar næstkomandi og sótt er um í gegnum Filmfreeway.com/Shortfish. Nánari upplýsingar má finna á vef hátíðarinnar.

Dögg og Halla stýra Stockfish

Ný framkvæmdarstjórn hefur tekið við hátíðinni en það eru kvikmyndagerðarkonan og fyrrum stjórnandi Northern Wave Film Festival, Dögg Mósesdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, stjórnandi bókmenntahátíðarinnar Queer Situations og fyrrum dagskrárgerðarmaður á Rás 1.

Stockfish mun fara fram dagana 3.–13. apríl 2025 í Bíó Paradís með fjölbreyttri dagskrá kvikmyndasýninga, viðburða og bransadaga, sem fara fram bæði í Bíó Paradís og víðar í borginni.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR