Viðar Oddgeirsson, yfirmaður tæknisviðs fréttastofu RÚV, er látinn sextugur að aldri. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu síðastliðinn föstudag.
Viðar starfaði um áratugaskeið sem tæknimaður hjá Sjónvarpinu í ýmsum störfum, þar af síðustu 16 ár sem yfirmaður tæknisviðs fréttastofunnar.
Klapptré vottar fjölskyldu, vinum og vinnufélögum samúð og minnist mikils heiðursmanns og frábærs samstarfsfélaga.
Sjá nánar hér: Viðar Oddgeirsson látinn