Hjördís Stefánsdóttir skrifar í Morgunblaðið um heimildamynd Helga Felixsonar, Njósnir lygar og fjölskyldubönd, en myndin er nú í sýningum í Bíó Paradís. „Myndin er í senn mjög áhugaverð og stórmerkileg söguleg heimild sem sýnir hvernig átök styrjalda stórvelda geta af sér meinvörp sem eitra út frá sér yfir á afskekkt annes óháðra smáríkja og öfugt, hvernig illvígar fjölskylduerjur geta óvænt ratað inná fjarlægari vígstöðvar.“
Skoða má umsögn Hjördísar hér að neðan, smelltu á myndina til að stækka.