Everest Baltasars Kormáks verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum annað kvöld. RÚV birtir viðtal við leikstjórann á vef sínum.
Þar segir meðal annars:
Baltasar segir að hann sé að sjálfsögðu örlítið stressaður fyrir stóra kvöldið – núna sé þetta hins vegar í höndum kvikmyndaguðanna.
Og ennfremur:
Baltasar segir í samtali við fréttastofu að tilfinningin fyrir frumsýningardaginn á morgun sé góð – smá stress eins og venjulega. „Þetta er langstærsta og erfiðasta verkefni sem ég hef tekið mér fyrir hendur – þetta er kostnaðarsöm mynd enda tekin upp á fjórum stöðum í þremur löndum,“ segir leikstjórinn.
Dagskráin hjá honum verður þéttskipuð næstu daga – frumsýning í Feneyjum, svo kvikmyndahátíð í Frakklandi, frumsýning í Bandaríkjunum og Danmörku og svo hér heima. Hann ætlar einnig að gefa sér tíma til að fara á kvikmyndahátíðina í Toronto þar sem fyrstur þátturinn af sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð verður sýndur. „Þetta verður líf í ansi mörgum ferðatöskum næstu daga.“
Sjá nánar hér: „Núna er þetta í höndum kvikmyndaguðanna“ | RÚV