Tökur á Everest í leikstjórn Baltasars Kormáks hefjast í Nepal í næstu viku. Þaðan verður haldið til Ítalíu og loks til Pinewood stúdíósins í Bretlandi þar sem tekur verður upp í hinu sögufræga 007 myndveri. Ingvar E. Sigurðsson verður í leikarahópnum og fer með hlutverk rússneska fjallgöngumannsins Anatoli Boukreev. Með helstu hlutverk í myndinni fara Jake Gyllenhaal, Josh Brolin, John Hawkes og Jason Clark.
Sjá nánar hér: Vísir – Ingvar E. með stórt hlutverk í Everest.