"Aðstandendur hafa lagt hjarta og sál í myndina sem er vel skotin og fagmannlega framleidd fyrir lítinn pening. Fáránlegt handrit, klisjukenndur texti og stirður leikur strákanna gerir að verkum að senur verða sprenghlægilegar sem eiga ekkert endilega að vera það," segir Magnús Jochum Pálsson meðal annars í Vísi um kvikmyndina Undir ísnum eftir Kristján Sturlu Bjarnason.