Stjórn ÍKSA hefur ákveðið að gera breytingar á Edduverðlaununum og veita einnig öll fagverðlaun fyrir leikið sjónvarpsefni. Þetta er gert í samráði við Sjónvarpsverðlaunin.
Opnað hefur verið fyrir innsendingar verka til Eddunnar 2026. Stjórn ÍKSA hefur ákveðið að bæta við fimm nýjum verðlaunaflokkum, besta leikna sjónvarpsefninu og leikkonu og leikara í aðal- og aukahlutverkum í sjónvarpi.