ELDHÚS EFTIR MÁLI sigurvegari Sprettfisksins á Stockfish kvikmyndahátíðinni, SPAGETTÍ hlaut sérstaka viðurkenningu

Stuttmyndin Eldhús eftir máli eftir Atla Arnarsson og Sólrún Ylfu Ingimarsdóttur bar sigur úr býtum í stuttmyndakeppninni Sprettfiskurinn sem Stockfish kvikmyndahátíðin stendur fyrir. þá hlaut kvikmyndin Spagettí eftir Egil Gauta Sigurjónsson og Nikulás Tuma Hlynsson sérstaka viðurkennningu dómnefndar.

Stockfish kvikmyndahátíðin fór fram dagana 20. – 30. maí og í dómnefndinni í ár sátu þau Marina Richter blaðamaður og kvikmyndarýnir, Tinna Hrafnsdóttir leikkona og leikstjóri og Grímur Hákonarson handritshöfundur og leikstjóri. Öll voru þau sammála um að valið hafi verið óvenju erfitt og engin ein mynd borið höfuð og herðar yfir aðrar.

Atli og Sólrún hljóta verðlaunagrip eftir systkinin Marsibil og Róbert Kristjánsbörn sem og 1.000.000 króna úttekt frá Kukl í tækjaleigu sem mun koma sér að góðum notum við gerð næstu myndar. Hér fyrir neðan svo sjá umsagnir dómnefndar um báðar myndirnar.

Umsögn dómnefndar um Eldhús eftir máli

Að fanga anda þess klassíska hefur aldrei verið einfalt verk: að vera trúr söguþræði en þó gefa myndinni einstakan blæ sem gerir áhorfið einstætt og eftirminnilegt. Verkið er tæknilega óaðfinnanlegt með áherslu á minnstu smáatriðin ásamt fallegri kvikmyndatöku og innrömmun. All þetta, sem og góður dass af vitsmunalegum húmor í undiröldu hennar, gerir það að verkum að áhorf myndarnir verður afar heillandi. Af þessum ástæðum veitir dómnefnd Eldhús eftir máli eftir Atla Arnarsson og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur verðlaun Sprettfisksins 2021.

Sérstök viðurkenning: Spagettí

Óhefðbundin spennumynd úr undirheimum Kópavogs, full af lífsgleði og sköpunarkrafti. Höfundar brjóta flest lögmál kvikmyndagerðar á afar snyrtilegan hátt svo úr verður ógleymanleg upplifun. Af þessum ástæðum veitir dómnefnd Spagettí eftir Nikulás Tuma Hlynsson og Egil Gauta Sigurjónsson sérstaka viðurkenningu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR