[Stikla] SAUMAKLÚBBURINN frumsýnd 2. júní

Saumaklúbburinn, fyrsta bíómynd Göggu Jónsdóttur, verður frumsýnd 2. júní. Myndina átti upphaflega að frumsýna 9. apríl en var frestað vegna samkomutakmarkana. Stikla myndarinnar er hér.

Saumaklúbburinn fjallar um fimm konur á besta aldri sem skella sér saman í bústað til að hafa það reglulega gott og slaka á, frjálsar frá sífelldu amstri hversdagsins. Undir huggulegu yfirborðinu leynast þó gamlar syndir sem leysast úr læðingi þegar síst varir. Uppgjör er óumflýjanlegt og allt fer hreinlega til andskotans hratt og örugglega, segir í kynningu.

Með aðalhlutverk fara Edda Björg Eyjólfsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir og Elma Lísa Gunnarsdóttir.

Gagga og Snjólaug Lúðvíksdóttir sömdu handritið.

Þetta er þriðja gamanmyndin í röð frá framleiðendunum Erni Marinó Arnarsyni og Þorkeli Harðarsyni, en frá þeim komu á síðasta ári Síðasta veiðiferðin og Amma Hófí. Tökur fóru fram sumarið 2020 á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR