Hildur Guðnadóttir tilnefnd til Emmy verðlauna fyrir tónlistina í „Chernobyl“ þáttaröðinni

Hildur Guðnadóttir tónskáld (MYND ANTJE TAIGA JANDRIG)

Hildur Guðnadóttir, tónskáld, hefur verið tilnefnd til Emmy verðlauna fyrir tónsmíði sína fyrir þættina Chernobyl sem hafa vakið mikla athygli. Hljóðrás Hildar fyrir þættina hefur ekki síður vakið athygli en hún var öll samsett úr hljóðum sem tekin voru upp í kjarnorkuveri.

Vísir greinir frá og bætir við:

Hildur er tilnefnd fyrir verkið Please Remain Calm. Þetta er þó ekki eina tilnefning Chernobyl þáttanna til Emmy verðlauna en þeir eru alls tilnefndir til 19 verðlauna á hátíðinni. Þar á meðal besta aðalleikara, besta aukaleikara og bestu aukaleikkonu.

Sjá nánar hér: Hildur Guðnadóttir tilnefnd til Emmy verðlauna

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR