Nærgöngul heimildamynd um Nick Cave opnar Reykjavík Shorts & Docs hátíðina

Nick Cave spekúlerar í tilgangsleysi allra hluta.
Nick Cave spekúlerar í tilgangsleysi allra hluta.

Reykjavík Shorts & Docs Festival verður haldin í 12. sinn dagana 3.-9. apríl í Bíó Paradís og Stúdentakjallaranum. Að venju er áherslan á innlendar og erlendar stutt- og heimildamyndir, en auk kvikmyndasýninga verður fjöldi annarra viðburða á hátíðinni.

Myndir um tónlist og aðrar listir í forgrunni

Í ár verða heimildamyndir um tónlist og listir í forgrunni á Reykjavík Shorts & Docs Festival en auk þess verða sýndar íslenskar stuttmyndir og heimildamyndir, og erlendar stuttmyndir. Áhorfendur munu velja bestu íslensku stuttmyndina eða bestu íslensku stuttu heimildamyndina og verða verðlaunin veitt sigurvegaranum á verðlaunaathöfn á lokakvöldi hátíðarinnar 9. apríl í Bíó Paradís.

Nærgöngul lýsing á Nick Cave

Opnunarmynd hátíðarinnar er heimildamyndin 20.000 Days on Earth um tónlistarmanninn og Íslandsvininn Nick Cave. Spenna, átök og kaldur raunveruleiki mætast í „uppspunnum“ 24 klukkutímum tónlistarmannsins og poppgoðsins Nicks Cave. Myndin gengur langt í nærgöngulli lýsingu sinni á átökum listamannsins við sjálfan sig og list sína og leitar svara við heimspekilegum spurningum um tilveru okkar um leið og hún skoðar mátt skapandi hugsunar.

Myndin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda víða um heim og verið sýnd á fjölmörgum kvikmyndahátíðum. Leikstjórar myndarinnar eru Iain Forsyth & Jane Pollard. Myndin verður frumsýnd 3. apríl í Bíó Paradís og áfram meðan á hátíðinni stendur.

Aðrar staðfesta heimildamyndir í ár eru m.a.:

Finding Vivian Maier
Finding Vivian Maier er heimildarmynd sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Myndin fjallar um dularfulla barnfóstru sem í leyni tók yfir 100.000 ljósmyndir sem voru að endingu faldar í læstum hirslum í marga áratugi. Maier er í dag talin á meðal mikilvægustu ljósmyndara 20. aldar. Undarlegt en heillandi líf þessarar konu birtist áhorfandanum í gegnum áður óbirtar ljósmyndir, kvikmyndaupptökur og viðtöl við fjölda manns sem taldi sig þekkja hana.

My Prairie Home
My Prairie Home fjallar um söngvarann og listamanninn Rae Spoon sem fer með áhorfandanum í ferðalag sem er í senn skemmtilegt, andlegt og stundum melankólískt. Umhverfið eru víðáttur hinnar mikilfenglegu Kanadasléttu en í myndinni kynnumst við Spoon, tónlist þeirra og sjáum þau koma fram. Spoon er transmaður og heimildarmyndin gefur áhorfandanum sýn inn í ferlið sem því fylgir og lífsbaráttu Spoons sem transmanneskju og sem tónlistarmanns. My Prairie Home er tónlistarheimildarmynd í fullri lengd og leikstýrð og leikstjóri myndarinnar er Chelsie McMullan.

Inside Out: The People’s Art Project
Þessi heillandi heimildarmynd fylgist með þróun stærsta „samvinnu-listverkefni“ heims þar sem fjölda fólks var boðið að gerast þáttakendur í verkefninu Inside Out. Franski listamaðurinn JR fór um hnöttinn og virkjaði einstaklinga til að útlista og tjá það sem skipti sig mestu máli – verkin eru sett fram af ástríðu, risastórar svarthvítar portrettljósmyndir límdar á veggi á götum úti í almannarými. Fylgst er með fólki á ýmsum aldri eigna sér veggi sem áður voru á bannsvæði og þar með reyna á eigin persónulegu þolmörk. Með því að festa atburðinn á filmu hefur Alastair Siddons skapað skýran vitnisburð um mátt listar til að umbreyta heilum samfélögum.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR