„Undir trénu“ í keppni í Feneyjum

Undir trénu Hafsteins Gunnars Sigurðssonar hefur verið valin til þátttöku í Orrizonti keppni Kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum sem er hluti af aðaldagskrá hennar. Feneyjahátíðin er stofnuð 1932 og því sú elsta sinnar tegundar, ein af hinum þremur stóru ásamt Cannes og Berlín. Hún verður haldin í 74. skiptið í ár dagana 30. ágúst til 9. september.

Frumsýningu myndarinnar á Íslandi hefur af þessum sökum verið frestað um tvær vikur og fer nú fram í fyrstu viku september, en Feneyjahátíðin gerir kröfu um heimsfrumsýningu á hátíðinni.

Undanfarin ár hafa íslenskar kvikmyndir verið að ryðja sér til rúms á hátíðinni en árið 2010 var fransk/íslenska stuttmyndin Líf og dauði Henrys Darger í leikstjórn Bertrand Mandico valin til þátttöku í Orizzonti. Everest, mynd Baltasar Kormáks var opnunarmynd hátíðarinnar árið 2015 og í fyrra tók Hjartasteinn eftir Guðmund Arnar Guðmundsson þátt í Venice Days sem er hliðarkeppni á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og vann þar til Queer Lion verðlaunanna.

Undir trénu fjallar um Agnesi sem grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífsmyndband, hendir honum út og meinar honum að umgangast 4 ára dóttur þeirra. Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna skyggir á garð nágrannanna, sem eru orðnir langþreyttir á að fá ekki sól á pallinn. Á sama tíma og Atli berst fyrir umgengni við dóttur sína verður deilan um tréð sífellt harðari. Eignaspjöll eru framin og gæludýr hverfa á dularfullan hátt þegar sögusagnir um mann með keðjusög fara á kreik.

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson (Á annan veg / 2011, París norðursins / 2014) leikstýrði og skrifaði handritið ásamt Huldari Breiðfjörð. Framleiðendur myndarinnar eru Grímar Jónsson, Sindri Páll Kjartansson og Þórir Snær Sigurjónsson fyrir hönd Netop Films á Íslandi og erlendir meðframleiðendur koma frá Danmörku, Póllandi og Þýskalandi.

Með sölu og dreifingu erlendis fer fyrirtækið New Europe Film Sales.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR